Klipsch · Hillu / Borðhátalarar með magnara

Klipsch - The Three Plus PREMIUM Bluetooth hátalari (Matt Svartur)

Borðhátalari með 2.1 kerfi, phono-formagnara og Bluetooth 5.3 — í mattsvörtu.

55.996 kr. 69.995 kr.
Þú sparar 13.999 kr. · Black Friday vika
Verð með VSK
Dreifðu greiðslum — frá 3.335 kr./mán.+
Borga með Netgíró 3.335 kr. á mán.

24 mánuðir með Netgíró raðgreiðslum Samtals: 80.036 kr.

Lántökugjald
5,76%
Vaxtastig
17%
ÁHK
43%
Aðrir kostir
LengdÁ mánuði SamtalsÁHK
2 mán. 29.385 kr.58.769 kr. 42,94%
3 mán. 19.868 kr.59.603 kr. 42,99%
6 mán. 10.376 kr.62.257 kr. 42,98%
9 mán. 7.225 kr.65.021 kr. 42,99%
12 mán. 5.656 kr.67.874 kr. 42,99%
15 mán. 4.721 kr.70.814 kr. 43%
18 mán. 4.101 kr.73.826 kr. 43%
21 mán. 3.662 kr.76.904 kr. 42,99%

Áætlaðar greiðslur. Endanleg kjör, árleg hlutfallstala kostnaðar og heildarupphæð birtast hjá greiðsluveitanda og eru háð lánshæfismati. Greiðsludreifingin er valin í kassanum.

Litir
SvarturValhneta
Til á lager (1)
Bóka hlustun á þessari vöru

The Three Plus er einn kassi sem gerir það sem hljómtækjastafli gerði einu sinni. Inni er 2.1 kerfi: tvær 2,25 tommu fullsviðseiningar, 5,25 tommu bassi með löngu slagi og tvær passífar keilur sem sitja andspænis hvor annarri á hliðunum. Það er síðasta atriðið sem gerir að 45 Hz koma úr tæki sem er 35 cm á breidd — passífu keilurnar vinna á þrýstingnum sem bassinn býr til og þær hafa engan magnara á bak við sig.

Tengingarnar segja hvað hann er hugsaður fyrir. Bluetooth 5.3 fyrir símann og hann man átta tæki. RCA með innbyggðum phono-formagnara fyrir plötuspilarann — engan sérstakan formagnara þarf. Optískt inntak fyrir sjónvarpið, allt að 24 bita/96 kHz. Og USB-C sem spilar úr tölvunni og hleður símann í leiðinni.

Hnapparnir og hjólin á toppnum eru raunverulegir hnappar og hjól, og húsið er klætt viði. Klipsch Connect appið býður tónjafnara, forstillingar og uppfærslur fyrir þá sem vilja þær. Þessi er mattsvartur.

Fyrirferðarlítill en kraftmikill

Þrátt fyrir kraftmikinn hljóm er Klipsch The Three Plus aðeins 35,6 cm á breidd, 21,3 cm á dýpt og 17,8 cm á hæð. Fyrirferðarlítil hönnun gerir það að verkum að hátalarinn passar nánast hvar sem er á heimilinu.

Klassísk hönnun í nútímalegum búningi

Klipsch The Three Plus fæst í tveimur glæsilegum útfærslum, valhnetu og íbenholtssvörtu, svo þú getur valið það útlit sem hentar þínum stíl og innréttingum heimilisins.

USB-C tenging og hleðsla

Tengdu uppáhaldstækin þín við Klipsch The Three Plus með USB-C til að spila tónlist og hlaða tengd tæki á sama tíma.

Tengdu marga hátalara þráðlaust

Með nýju Broadcast Mode tækninni getur þú tengt fleiri en 10 samhæfa hátalara þráðlaust og látið þá spila sömu tónlist samtímis. Þannig getur þú skapað samfellda og umlykjandi hljóðupplifun í stærri rýmum eða um allt heimilið.

Tilbúinn fyrir plötuspilarann

Með innbyggðu Phono/RCA-inntaki getur þú auðveldlega tengt plötuspilarann þinn við Klipsch The Three Plus og notið uppáhaldsvínylplatnanna þinna í framúrskarandi hljómgæðum.

Vönduð efni og fáguð hönnun

Klipsch The Three Plus sameinar klassíska hönnun og nútímalega hljóðtækni. Ytra byrði úr ekta viðarspæni ásamt vönduðum tökkum og stillihnöppum gefur hátalaranum glæsilegt og tímalaust útlit.

Hönnunin byggir á áratuga arfleifð Paul W. Klipsch þar sem framúrskarandi hljómgæði, vönduð efnisnotkun og nýjasta tækni fara saman.

Stærri og kraftmeiri hljómur

Klipsch The Three Plus er öflugt 2.1 steríóhljóðkerfi með aðskildum mögnurum fyrir hátalaraeiningarnar. Hljóðkerfið er sérstaklega fínstillt af hljóðsérfræðingum Klipsch til að skila einstaklega skýrum og nákvæmum hljómi með djúpum og kraftmiklum bassa.

Með tveimur 2,25" breiðbandshátölurum og öflugum 5,25" bassahátalara er The Three Plus hannaður til að fylla stærri rými með ríkulegum og kraftmiklum hljómi.

Smáatriðin skipta máli.

45Hz - 20kHzTíðnisvið
106dBHámarkshljóðstyrkur

Hljóð & afköst

Hámarkshljóðstyrkur
106dB
Diskanttæki
2 × 2,25” (57,15mm) Full Range Drivers 5,25” (133,4mm) Long-Throw Woofer
Tíðnisvið
45Hz - 20kHz

Tengingar & smíði

Gerð kassa
Bass Reflex
Tengi
Bluetooth® 5,3, RCA (with Phono Pre-Amp), USB-C, Optical 13,98” (35,5cm) x 8,38” (21,3cm) x 7” (17,8cm)
USB-inntak
(1) USB Type-A Connection For System Updates and playback of MP3 files for test and debug purposes.

Annað

POWER
120W
FINISH OPTIONS
Walnut, Matte Black

Mál, þyngd og fylgihlutir

Þyngd
10,58lbs (4,8kg)
Fylgihlutir
Power Cord

Tölur frá framleiðanda. Fyrirvari er gerður um breytingar.

Bóka hlustun Karfa (0)